esprelloz
Lítið skref fyrir mannkyn en stórt fyrir mig...
      <description>Ég hef ákveðið að flytja mig um set.  Ég þakka blogdrive.com fyrir góða og ókeypis þjónustu, þetta hefði aldrei verið hægt án ykkar.
Hið nýja vefheimili mitt er:
 www.kommunan.is/elias
Draumur um draum
      <description>Svo ég haldi áfram a› tala um drauma...
Mig dreymdi a› draumur mun rætast á næstunni</description>
Draumaheimurinn óskiljanlegi
      <description>Þó ekki hafi farið fyrir dugnaðinum hér þá hef ég ekki sitið með hendur í skauti. Þó hefur svosem ekki margt drifið á daga mína sem vert er að minnast á, að minnsta kosti ekki á þessum vetvangi. Ég ætla því frekar að velta fyrir mér því sem gerist inn í hausnum á mér meðan ég sef.
Ég hef aldrei skilið hvað fólk vill oft gera mikið úr draumum. Ég hef ætíð túlkað drauma sem samansafn nýlegra minninga og hugsana. Það er að segja eitthvað sem maður hefur upplifað nýlega blandast saman við það sem hefur flogið í gegnum huga manns.
Úr þessu samansafni verður yfirleitt einhver hrærigrautur... (more)</description>
Hún á afmæli í dag..!
      <description>Hin yndislega og frábæra unnusta mín á afmæli í dag.  Hefur hún því náð mér í aldri.  Ég get því miður ekki verið með henni á afmælisdaginn, er upptekinn við útsteypingu, og þykir það fúlt.  Það eina sem ég get gert er að óska henni til hamingju með daginn, hún lengi lifi!!
Svona er sumarið
      <description>Mér finst sumarið aldrei vera komið fyrr en fyrsta helgin í júni gengur í garð.  Sumarið kom svo sannarlega um helgina, var reyndar komið nokkrum dögum á undan.  Sumarið semsagt komið og hver dagur öðrum betri.
Dagurinn í dag hefur ekki verið verri en hver annar, í dag byrjaði önnur törn sumars.  Aftur er ég hringekjumaður, sé um að snúa hringekju eitt.  Ég kvarta ekki yfir því.  Skokkaði svo um Skagann seinni hluta dags, það var hressandi.
Annars hefur fátt markvert gerst á mínu áhrifasvæði að undanförnu.  Má þó til með minnast á minnismerkið um "óþekkta embættismanninn" sem ég... (more)</description>
Guantanamo áskorun
Aumingjar í Kastljósinu!
      <description>Djöfulsins aumingjar í Kastljósinu... þau fengu fleyri færi til að sauma almennilega að Davíð en nokkur hefur áður fengið en auðvitað nýttu þau þau ekki.  Það var líkt og einhver hefði sagt þeim að draga sig til baka um leið og þau voru komin í góða sókn.  Sorglegt!  Alveg sorglegt!</description>
Dropinn sem fyllti mælinn?
      <description>Jahá, forsetinn okkar er hvorki gunga né drusla (sumum þykir hann samt örugglega vera drusla).  Hann lét ekki hótanir og hroka Davíðs aftra sé frá því að vísa fjölmiðlalögunum til þjóðarinnar.  Eða var það eftilvil Davíð sem knúði hann til þess?
Vissulega er Davíð búinn að ögra forsetanum margoft á síðustu vikum, en hann er ekki einungis búinn að ögra honum heldur einnig allri þjóðinni.
Margir hafa stigið fram og bent á að þessi fjölmiðlalög séu nú ekki nógu merkileg til þess að leggja þau fyrir þjóðina - það hafi komið upp önnur umdeildari og mikilvægari mál sem hafi hlotið samþyki... (more)</description>
Dí Djei Pangur Pan á Kjallaranum í kvöld!!!
      <description>Ég vil minna alla á að Dí Djei Pangur Pan mun spila plötusafnið sitt á Stúdentakjallaranum í kvöld.  Hann ku eiga fimm tíma af efni, eða alveg heilann hillumeter af plötum af eigin sögn.
Ég mun því miður missa af þessum merka  viðburði, og því og sérstaklega þess vegna hvet ég þig lesandi góður til að mæta á Stúdentakjallarann í kvöld.
Vond kvikmynd... uss!
      <description>Coyote Ugly hlýtur að vera meðal verstu kvikmynda sem gerðar hafa verið.  Það er nánast allt ömurlegt í henni - handritið, leikurinn, leikstjórnin, klippingin, allt!!  Nema kanski John Goodman, skil samt ekki hvað hann var að gera í þessari mynd.  Kanski hefur honum bara langað til að leika í mynd með sætum stelpum?
Það er ekki oft sem ég nenni að kvarta hérna en þetta er alveg ástæða til þess.  En það að ég hafi varið föstudagkvöldi um hvítasunnuhelgi í að horfa á þessa mynd sýnir kanski betur en margt annað hversu fjörugt líf mitt er þessa daganna.
Það er samt ekki svo slæmt. ... (more)</description>