esprelloz
-www.kommunan.is/elias-






esprelloz er...
Elías Jón Guðjónsson
24 ára
Stjórnmálafræðinemi við



Myndir
Á ferð um Suður-Ameríku
Kosningagleði Háskólalistans
Listakynning Háskólalistans

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30

Krækjur á...

...síður sem vert er að skoða
Háskólalistinn
KFA

Rauði kross Íslands
Alþjóða Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn
SOS Barnaþorpin á Íslandi
SOS Barnaþorpin, heimssamtökin
Íslandsdeild Amnesty International
Amnesty International
Drop The Debt
AFS á Íslandi
Ecuador
Lonely Planet
E-bookers
easyJet
Ryan Air
Iceland Express
Heilsufarsupplýsingar fyrir ferðamenn
Strætó

Punkcast
Magnumphotos
Lærðu að hnýta bindi
SHÍ
CIA factbook


...bloggarara
Ba11i
Freyr
Sverrir
Auður
Erla
Bragi
Jói Líndal
Drífa
Halli
Lárus
Austfjaðatröllið
Sjúddi
Urður
Sóla
Hannes
Gvendur "verkalýðshetja"
Ásgeir Rúnar
Kuldaboli
Auðvaldið
Myrkur



Pólítíkin
Vondu valdaklíkurnar...
Framsóknarflokkurinn
Frjálslyndi flokkurinn
Samfylkingin
Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstrihreyfingin - gænt framboð


...og fylgifiskar þeirra
Ung vinstri græn
Ungir kratar
Ungir íhaldsmenn
Ungir frammarar


...og þau hafa líka skoðanir
Deiglan
Múrinn
Kreml
Vefþjóðviljinn
Frjálshyggjufélagið
Samtök herstöðvaandstæðinga





Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed


 
28.5.04
Bakk tú vörk

Það blés nú ekki byrlega á ofni eitt þegar ég gekk inn í ofnhúsið í morgunn, málmur um öll gólf og allt stjórnlaust. Ég dæsti og blótaði með sjálfum mér. Ætlaði fyrsti vinnudagurinn að verða helvíti? Nei auðvitað ekki, ég er á E-vaktinni og þar redda menn hlutunum snarlega, sem og var gert.

Raunin varð sú að fyrsti vinnudagur sumars var einkar ljúfur við mig. Mér var falið að stjórna hringekjunni þessa törninina en sökum vandamálanna á ofni eitt snéri ég henni ekki einn einasta hring. Ég þurfti í staðinn að hella í sæng, hellti sex deiglum þar. Að öðru leiti var ég bara í allkonar snatti og tillfallandi verkefnum.

Það skemmtilegasta við daginn var auðvitað að hitta aftur félaganna. Fæstir hafa þeir breytst síðan ég sá þá síðast nema kanski félagi Jói Svans og félagi Sjúddi. Félagi Jói var með snoðkoll og félagi Sjúddi var kominn með strípur, mér til mikillar skelfingar. Ég verð þó að játa að félagi Sjúddi er einstaklega krúttlegur og sætur með svona strípur. Að auki ég tel nokkuð víst að honum verði áhætt að heimsækja Selfoss í sumar án nokkurra vandræða, a.m.k. á meðan strípurnar fá að njóta síns. Félagi Sjúddi var ekki einn um það að vera með strípur. Það lítur út fyrir að þær verði inn á Grundartanga í sumar.

Ágætis vinnudagur að baki.

Posted at 17:19 by Elías Jón
Já, finnst þér það? (5)

 
27.5.04
Pixes hvetja ekki til reiðhjólakappaksturs

Pixies stóðu svo sannarlega fyrir sínu í gær og virtust allir vera yfir ánægðir með þau.  Það sama verður ekki sagt um Ghost-digital, bandið sam hitaði upp fyrir þau. 

Sú tónlist sem þeir, Ghost-digital, fluttu féll ekki í kramið hjá mörgum sem staddir voru í Kaplakrika í gærkvöldi.  Það var þó til skammar þegar fólk fór að púa á þá.  Ef fólki líkar ekki við tónlist á tónleikum þá geta þeir bara slept því að klappa í stað þessa að púa (nema kanski á tónleikum með Skímó), það fólst í þessu púi mikið virðingarleysi.

Sem betur fer voru þeir fáir sem púuðu auk þess sem það var snarlega þaggað niður í þeim.  Á endanum hættu Ghost-digital að spila og við tók tónlist með the Beach Boy.  Allir virtust glaðir með það.  Svo ætlaði að lokum allt um kolla að keyra þegar hetjurnar stigu á sviðið.  Látunum linnti svo ekki fyrr en þau höfðu stigið á svið í annað sinn og leikið aukalög.

Þó svo tónleikarnir hafi verið með þeim betri, ef ekki bestir, sem ég farið á þá var ég feginn þegar þau gengu af sviði.  Á þeim tíma var ég farinn að þrá ferst loft og kalda golu.  Þvílíkur var hitinn þarna inni, samt sat ég á bekkjunum og get ekki ímyndað mér hvernig þetta var úti á gólfi.

Af einhverjum furðulegum ástæðum þá kviknaði engin löngum hjá mér til þess að taka þátt í Tour de France á þessum tónleikum.

Posted at 13:47 by Elías Jón
Svona, út með það! (0)

 
26.5.04
Hiti og sviti í járnblendisstriti

Dauðir dagar eru brátt á enda.  Pixies í kvöld og svo funheitt og fljótandi járnblendi á föstudaginn.  Aðgerðaleysi og aumingjaskapur mun því víkja fyrir blóði, svita og hita.  Letihaugurinn verður skilinn eftir í Krikanum á Pixies.

Friður sé með yður

Posted at 13:31 by Elías Jón
Já, finnst þér það? (3)

 
25.5.04
Ég er í fríi

Ég var í svo miklu fríi í dag að ég fór í stuttbuxur og þverröndóttann,litríkann pólóbol.  Ég setti líka upp sólgleraugu.  Já, ég var svalur og í smá stund leið mér eins og ég væri staddur á suðrænni sólskinseyju, eða þangað til að ég komst að því að þeir seldu ekki bjór í 10/11. 

"Nei, því miður seljum við ekki bjór en við eigum pilsner" sagði guttinn í í búðinni á Íslensku!  Og þá endanlega áttaði ég mig á því að ég var enn á Eggertsgöttunni og klæddur eins og þýskur túristi á Bahamas, nema hvað mig skortir færni til að mynda setningu á Þýsku.

Nokkra hluti veit ég þó um Þýsku.  Þýska er nokkuð útbreitt tungumál í Mið-Evrópu, töluð í Þýskalandi, Austuríki, Sviss og örugglega víðar.  Það merkasta sem ég veit um Þýsku er samt líklega það að öll nafnorð byrja á stórum staf.

Þessi vitneskja mín hefur reynst mér nokkuð nytsamleg í gegnum tíðina, þá einkum er ég hef verið að meta hvort að texti sé ritaður í Þýsku eða einhverju öðru tungumáli.  Maður sér alltaf hvenær um Þýsku er um að ræða vegna fjölda orða sem byrja á stórum staf.

Þessi vitneskja mín um þýsku breytir þó engu um þá skoðun mína að við séum með ónýta ríkisstjórn.  Það er nú búið að festa það í sögubækurnar að allir framsóknarmenn nema einn séu strengjabrúður sem dansa eftir framabraut formanns síns.  Það væri kannski ekki svo slæmt ef formaður þeirra hefði ekki selt formanni Sjálfstæðisflokksins sálu sína.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru svo eins og litlir púkar sem lúta í einu og öllu boðum formannsins.  Það er svo engum manni hollt að taka nafn formannsins sér í mun.

Helvítis kjaftæði um þingræði, það er ekkert þingræði.  Það er flokksræði.  Þingið er undir hælnum flokkunum og þingmennirnir dirfast ekki til nokkurra athafna án þess að fá til þess heimild eða boð frá flokknum.

Nú er þingið komið í sumarfrí, eins og ég.  Ætli formennirnir séu búnir að leggja hugmyndir sínar um sumarfrí þingmannanna fyrir þingflokkana?  Örrugglega, en ég vona þó að það muni ekki allir samþykja þær tillögur í blindni.

Ég á mér þá von að þingmenn geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir um það hvernig þeir hyggjast verja sumarfríinu sínu.  Ég vil þó benda þeim á að bíða með allar slíkar ákvarðanir í að minnsta kosti viku eða tvær eftir þinglok.  Svona rétt til þess að rækta upp í sér hina sjálfstæðu hugsun.

Ég er nú bara í mínu eigin fríi og haga því eftir eigin vindum og væntingum.  Því fer þó að ljúka, því á föstudaginn mun ég klæðast aftur rauða gallanum, hvíta hjálminum og stáltánni.  Frá þeim degi verð ég ofnaður númer 295 - til þjónustu reiðubúinn.

Ich bin ein Ofnengardmsand

Posted at 00:13 by Elías Jón
Svona, út með það! (0)

 
22.5.04
Dagbók

Ég hef ekkert fylgst með fjölmiðlum eða fréttum síðustu tvo daganna.  Ég veit ekki hvort ég sakni þess beint, en er samt ákaflega forvitinn.  Mér líður að þessu leiti eins og ég hafi verið í útlöndum.  Alltaf þegar ég kem til útlanda þá tekur það mig ávallt tvo til þrjá daga að komast inn í fjölmiðlaflóruna þar, já eða finna tölvu.

Miðvikudagurinn var ekki svo slæmur.  Endaði með ágæstis fjöri.  Fórum niður í miðbæ, ég, Auður, Freyr, Jakob og Sverrir, með það að markmiði að finna mat og bjór.  Þar var mun auðveldara að finna bjór heldur en mat enda var klukkan komin framyfir tuttugu.  Að lokum fundum við þó mat, á Indókína.  Mæli ekki með þeim stað, maturinn ekki slæmur en alls ekki peninganna virði.  Þar fengum við þó ágætis bjór, sem var reyndar á yfirverði.  Á meðan við vorum þarna bættist Guðrún Svava í hópinn.

Eftir að matarmarkmiðið var úr sögunni var auðvelt að ná hinu markmiðinu, sem hafði reyndar náðst í sömu andrá og matarmarkmiðið, en það gerir auðvitað ekkert til í að ná því nokkrum sinnum.  Bjórmarkmiðinu náum við á Sirkus, Dillon og 22.  Mikið fjör og gamann.  Nema kannski fyrir Frey á 22.

Fimmtudagurinn var eins og draugur, sveif hjá án þess að nokkur tæki eftir honum.  Fékk þó grillmat hjá tengdó.  Það bjargaði deginum án efa frá því að falla í djúpann hyl gleymsku.

Í dag (gær) var hjólreiðadagur fjölskyldunnar.  Ég og Guðrún Svava fórum í reiðhjólaleiðangur.  Það stóð nefnilega til að hleypa reiðhjólunum okkar út í vorið.  Þau voru langt frá því að vera jafn viljug og blessarðar beljurnar.  Flöt dekk og ónýt hjá Guðrúnu Svövu auk þess hnakkinn vantaði. 

Við gerðum okkur því ferð í reiðhjólaverslanir.  Guðrún Svava fékk ný dekk, slöngur og hnakk og ég ný bretti.  Eftirmiðdagurinn fór svo í að koma vörunum í notkun og hjólumum á götuna.  Það tókst að lokum þökk sé handlagni minni.

Við fögnuðum svo að lokum nýju lífi reiðhjólanna með því að hjóla úr Fannafoldinni og alveg yfir á Eggertsgötuna.  Það var ágætis ferð en blaut fram úr hófi.

Kvöldið sem nú er liðið er búið að vera alveg fullkomið.  Annað augað á sjónvarpinu hitt á bók og smá rauðvín, engir ostar.

Já eða næstum því fullkomið, því ég kíkti á netið og sá fréttirnar.  Heimurinn hefur ekkert batnað á þessum tveimur dögum.  Heimurinn verður víst ekki betri með því að loka augunum.

Posted at 00:30 by Elías Jón
Já, finnst þér það? (2)

 
18.5.04
Jahá... sjáið mig dansa!!!

Ég rakst á ljósmyndir frá geysiskemmtilegri próflokaskemmtun sem Hraun stóð fyrir á Stúdentakjallaranum síðastliðinn föstudag.  Þessar ljósmyndir segja að sjálfsögðu meira en orð fá lýst um þá gleði, fjör og sturlun sem þar ríkti. (smellið á myndirnar til að stækka þær)

            Sjáður mig dansa!!! Hvaða djöfullsins skeggapi er þetta??  Arrggh!!! Bragi, Freyr og ég í að því er virðist góðum fíling... hraun í bakgrunni

            Svavar og Bragi stjórna dansi  Freyr virðist hafa gaman af þessu

Þessum myndum stal ég af Logan.  Ég vona að hann verði ekki reiður, ef hann verður það þá fjarlægi ég bara myndirnar.

Posted at 10:47 by Elías Jón
Já, finnst þér það? (3)

 
16.5.04
Þjóðmálaþættir

Hvað er með þessa spjallþætti þar sem þjóðmálin eru til umræðu? Það eru allaf sömu spekingarnir sem mæta á svæðið og koma sín stöðluðu og vel ígrunduðu svör og álit.  Hvernig væri að bjóða venjulegu fólki að taka þátt - kaupmanninum á horninu, stöðumælaverðinum eða ruslakallinum?  Fá fólk sem er laust við alla málefnalega fjötra, fólk sem segir það sem því býr í brjósti.

Eitt sem gæti verið til mikilla bóta er að breyta umhverfi þáttanna, það er að fara úr þessu staðlaða "borð og stólar" setti.  Sem dæmi væri hægt að kúpla hinu steingelda Kastljósi Ríkissjónvarpsins út og setja "heita pottinn" í staðin á dagskrá. 

Heiti potturinn yrði bara svona venjulegur spjallaþáttur, nema hvað hann yrði tekinn upp í heitum pottum almenningssundlauga landsins.  Best væri að þátturinn yrði tekinn upp á annatíma í laugunum þannig að öruggt væri að mikill umgangur væri.  Viðmælendur yrðu svo bara þessir venjulegu spekingar auk þess sem sundlaugagestum yrði boðið að taka þátt í umræðunum, það er að hver sem er gæti komið og fengið sér sæti í pottinum.

Hver vill ekki sjá Egil Helga, Svanhildi Hólm, Davíð eða Ingibjörgu á sundfötum?

Posted at 23:52 by Elías Jón
Já, finnst þér það? (4)

 
15.5.04
Svitabað

Helvíti magnað kvöld í gær. Hef ekki tjúttað svona mikið síðan á Titty-Twisters hérna um árið.

Djöfullsins fjör var þetta (án þess að ég sé að taka neitt frá Guði eða ákalla djöfulinn). Ég fór á Stúdentakjallarann -kjallara allra stúdenta- í gærkvöldi.  Þar var stuðsveitin HRAUN að flytja og útbíta ýmsum tónum.  Þetta var bara helvíti magnað hjá þeim, hef fátt annað um það að segja.

Samkvæmt hinum víðfræga svitastuðli þá var þetta topp djamm. Svitastuðullin er mældur með því að vega skyrtuna (já bol eða peysu... var skyrta í mínu tilfelli) áður en til skemmtunar er gengið og síðan aftur er heim er komið. Þyngdarmismunurinn er svo svitastuðullinn. Því hærri stuðull, því meira fjör hefur verið.  Svo ber einnig að reikna inn í dæmið hluti eins og hitastig, loftslag og loftræstingu, en það eru flóknari hlutir sem ég fer ekki út í hér og eru aðeins nauðsynlegir þegar bara á samann djömm og þá aðalega djömm í mismundi lofslagi og löndum.

Eitthversstaðar, einhverntímann í kvöld verðu án efa fjör í grend við mig...

Rudy can't fail!

Posted at 17:34 by Elías Jón
Já, finnst þér það? (3)

 
14.5.04
Tími til að taka svoldið út úr gleðibankanum...

Ég var að átta mig á því að ég er búinn í prófunum og það er helgi framundan.  Mér er því best að fara í ríkið í dag og leysa út áfengi, því engin er gleðin án áfengis.

Í kvöld er allt óráðið og ég bendi því öllum einmanna sálum að hafa samband við mig í kvöld.

Á morgunn verður opið hús í klefa 116, það er að segja ef nágrannarnir verða búinir í prófum og/eða samþykja glaum og gleði.  Það verður 28 tommu risaskjár á staðnum þannig að engin mun missa af Júróvísjón.  Óvæntir og óboðnir gestir sérstaklega velkomnir.

Úje!


Posted at 11:21 by Elías Jón
Já, finnst þér það? (1)

 
13.5.04
Staða mín á hinu pólítíska litrófi...

Ég hafði lítið að gera og ákvað því að taka political compass prófið einu sinni en eftir að ég sá það hjá Auði. 

Útkoman kom mér að sjálfsögðu gríðarlega á óvart.  Það er alveg ljóst að ég mun ekki kjósa Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum.

Ég er frjálslyndur félagshyggjumaður.  Ætli Vinstri grænir falli ekki best að þessu af íslensku flokkunum.  Hér fyrir neðan eru niðurstöðurnar.

The Political Compass
Economic Left(-)/Right(+): -6.50
Social Libertarian(-)/Authoritarian(+): -6.62

Posted at 23:01 by Elías Jón
Já, finnst þér það? (7)

Previous Page Next Page