Lítið skref fyrir mannkyn en stórt fyrir mig...
Ég hef ákveðið að flytja mig um set. Ég þakka blogdrive.com fyrir góða og ókeypis þjónustu, þetta hefði aldrei verið hægt án ykkar.
Hið nýja vefheimili mitt er:
www.kommunan.is/elias
Posted at 20:58 by Elías Jón
Svo ég haldi áfram a› tala um drauma...
Mig dreymdi a› draumur mun rætast á næstunni
Posted at 21:18 by Elías Jón
Draumaheimurinn óskiljanlegi
Þó ekki hafi farið fyrir dugnaðinum hér þá hef ég ekki sitið með hendur í skauti. Þó hefur svosem ekki margt drifið á daga mína sem vert er að minnast á, að minnsta kosti ekki á þessum vetvangi. Ég ætla því frekar að velta fyrir mér því sem gerist inn í hausnum á mér meðan ég sef.
Ég hef aldrei skilið hvað fólk vill oft gera mikið úr draumum. Ég hef ætíð túlkað drauma sem samansafn nýlegra minninga og hugsana. Það er að segja eitthvað sem maður hefur upplifað nýlega blandast saman við það sem hefur flogið í gegnum huga manns.
Úr þessu samansafni verður yfirleitt einhver hrærigrautur sem kallaður eru draumar. Stundum dreymir mig eitthvað sem ég get krufið niður í frumeindirnar sem ég talaði um í síðustu málsgrein. Þannig draumar styrkja kenningu mína.
Flestir draumar mínir, það er að segja þeir sem ég man þegar ég vakna, eru hinsvegar einhver óskiljanleg endaleysa. Oftast get ég greint einhverja frumeind í þeim draumum en það er sjaldnast nóg til að skýra allann drauminn.
Annað sem einnig getur spilað inn í er sú staðreynd að ég man sjaldnast hvað mig dreymir - mann oftast bara að mig dreymdi einhverja ógurlega vitleysu. Þegar ég man svo eitthvað þá eru það einungis glefsur, svona eins kvikmyndaauglýsing - stundum er nóg að sjá auglýsinguna til að skilja kvikmyndina en sjaldnast.
Hefur þetta þá ekki allt saman með draumaminni, eða öllu heldur minnisleysi, mitt að gera? Er það ekki ástæðan fyrir því að minningar mínar um ferðalög mín um draumalandið eru í líkingu við söguna um Lísu í Undralandi frekar en eitthvað sem hægt er að skilja - eitthvað sem hægt er að túlka? Verður öll þessi vitleysa ekki til þegar minningar renna saman í eina glefsu - einn treiler?
Ekki skortir alla jafn mikið draumminni og ég geri.
Ingvar, félagi minn, heldur því fram að hann geti stjórnað því hvað hann dreymi. Við leigðum samann einn vetur, sælla minninga, og þá stóð hann öðru hvoru upp úr sófanum og tjáði mér að hann væri farinn inn í rúm að dreyma.
Ingvar segist einnig muna alla drauma sína, jafnvel betur en raunveruleikann. Ef rétt er þá gæti hann lent í þeim aðstæðum að þekkja ekki muninn milli draumaheimsins og veruleikans. Þá gæti hið gamla húsráð að klípa sig komið að góðum notum. Svo þykir mér auk þess líklegt að raunveruleikinn sé eitthvað grárri og ósanngjarnari heldur draumaheimur Ingvars.
Jafnvel þó svo draumar og raunveruleikinn renni ekki saman þá væri ég til í það að búa yfir þeim hæfilekum sem Ingvar hefur, þó ekki væri nema í einn dag. Það gæti eflaust hjálpað mér að skilja drauma, ég myndi að minnsta kosti muna þá og geta velt þeim fyrir mér, jafnvel sagt frá þeim hér á síðunni.
Hvað ætli Ingvar hafi dreymt í nótt, ég man að minnsta kosti ekki hvað mig dreymdi.
Posted at 09:16 by Elías Jón
Hin yndislega og frábæra unnusta mín á afmæli í dag. Hefur hún því náð mér í aldri. Ég get því miður ekki verið með henni á afmælisdaginn, er upptekinn við útsteypingu, og þykir það fúlt. Það eina sem ég get gert er að óska henni til hamingju með daginn, hún lengi lifi!!

Posted at 14:06 by Elías Jón
Mér finst sumarið aldrei vera komið fyrr en fyrsta helgin í júni gengur í garð. Sumarið kom svo sannarlega um helgina, var reyndar komið nokkrum dögum á undan. Sumarið semsagt komið og hver dagur öðrum betri.
Dagurinn í dag hefur ekki verið verri en hver annar, í dag byrjaði önnur törn sumars. Aftur er ég hringekjumaður, sé um að snúa hringekju eitt. Ég kvarta ekki yfir því. Skokkaði svo um Skagann seinni hluta dags, það var hressandi.
Annars hefur fátt markvert gerst á mínu áhrifasvæði að undanförnu. Má þó til með minnast á minnismerkið um "óþekkta embættismanninn" sem ég gekk fram á í skemmtilegu porti í miðborginni. Þar er prýðileg aðstaða til að sitja á góðviðrisdögum og drekka bjór og kasta bolta.
Mamma og pabbi eru líka búin að koma upp góðri aðstöðu í garðinum hjá sér til að drekka bjór og kasta bolta á góðviðrisdögum. Þetta er reyndar meira en góða aðstaða - þetta er hrikalega flott hjá þeim. Þau standa sig vel í þessu saman. Ég vildi óska þess að ég væri jafn handlaginn og hann föður minn. Það er samt aldrei of seint að læra.
Posted at 21:18 by Elías Jón
Posted at 16:27 by Elías Jón
Djöfulsins aumingjar í Kastljósinu... þau fengu fleyri færi til að sauma almennilega að Davíð en nokkur hefur áður fengið en auðvitað nýttu þau þau ekki. Það var líkt og einhver hefði sagt þeim að draga sig til baka um leið og þau voru komin í góða sókn. Sorglegt! Alveg sorglegt!
Posted at 21:17 by Elías Jón
Dropinn sem fyllti mælinn?
Jahá, forsetinn okkar er hvorki gunga né drusla (sumum þykir hann samt örugglega vera drusla). Hann lét ekki hótanir og hroka Davíðs aftra sé frá því að vísa fjölmiðlalögunum til þjóðarinnar. Eða var það eftilvil Davíð sem knúði hann til þess?
Vissulega er Davíð búinn að ögra forsetanum margoft á síðustu vikum, en hann er ekki einungis búinn að ögra honum heldur einnig allri þjóðinni.
Margir hafa stigið fram og bent á að þessi fjölmiðlalög séu nú ekki nógu merkileg til þess að leggja þau fyrir þjóðina - það hafi komið upp önnur umdeildari og mikilvægari mál sem hafi hlotið samþyki forseta. Ég er sammála þeim hluta að stærri mál hafi komið fram. En er það málið? Eru það rök gegn ákvörðun hans?
Þetta fjölmiðlamál er það umdeildasta sem komið hefur fyrir Alþingi langann langann tíma, svo lengi sem ég man. Því er ekki hægt að neita að fjölmiðlar gerðu sitt í að magna málið allt saman upp. En ég tel þó að fólk sé ekki það vitlaust að látast algjörlega glepjast á því. Það sáu allir sem vildu sjá að allt þetta mál var meingallað.
Var ekki einfaldlega komið nóg? Ríkisstjórnin kunni bara ekki að stoppa, þekkti ekki sín takmörk. Hvert málið á fætur öðru hefur sætt mikillar andstöðu þjóðarinnar. Öryrkjamálið, Falun Gong, eftirlaunafrumvarp Davíðs, Kárahnjúkavirkjun, Ríkisábyrgðir til ÍE, stuðningur við innrásina í Írak, dómararáðningin hans BB-King, útlendingalögin og fleyri. Allt eru þetta mál þar sem ríkisstjórnin hefur ekki á nokkurn einasta hátt virt viðlits vilja eða skoðanir þjóðarinnar.
Svo kom dropinn sem fyllti mælinn, fjölmiðlafrumvarpið. Gremjan og andúðin gagnvart ríkisstjórninni varð sem aldrei fyrr. Davíð hafði gengið einu skrefi of langt.
Ríkisstjórnin hefur einfaldlega kallað þessa ringulreið sem nú ríkir yfir sig með framgöngu sinni. Vonandi lærir hún á þessu og áttar sig á því að við búum í lýðræðisríki ekki flokkræðisríki.
Posted at 21:16 by Elías Jón
Dí Djei Pangur Pan á Kjallaranum í kvöld!!!
Ég vil minna alla á að Dí Djei Pangur Pan mun spila plötusafnið sitt á Stúdentakjallaranum í kvöld. Hann ku eiga fimm tíma af efni, eða alveg heilann hillumeter af plötum af eigin sögn.
Ég mun því miður missa af þessum merka viðburði, og því og sérstaklega þess vegna hvet ég þig lesandi góður til að mæta á Stúdentakjallarann í kvöld.
Posted at 20:50 by Elías Jón
Coyote Ugly hlýtur að vera meðal verstu kvikmynda sem gerðar hafa verið. Það er nánast allt ömurlegt í henni - handritið, leikurinn, leikstjórnin, klippingin, allt!! Nema kanski John Goodman, skil samt ekki hvað hann var að gera í þessari mynd. Kanski hefur honum bara langað til að leika í mynd með sætum stelpum?
Það er ekki oft sem ég nenni að kvarta hérna en þetta er alveg ástæða til þess. En það að ég hafi varið föstudagkvöldi um hvítasunnuhelgi í að horfa á þessa mynd sýnir kanski betur en margt annað hversu fjörugt líf mitt er þessa daganna.
Það er samt ekki svo slæmt. Þetta var að minnsta kosti botninn.
Posted at 00:33 by Elías Jón